Er desember??Ósk Kristinsdóttir

Möguleiki á að einhver geti komið út til mín með engann farangur til þess eins að hjálpa mér með mitt dót heim og ég sleppi við yfirvigt??

Nei??

Dí þið eruð ekki sannir vinir!!

 

6 dagar í heimkomu

 

Búin með flestar jólagjafir og þær eru sko ekki fáar! svoddan systkinaher hjá Ómari Inga.

 

Eyddi deginum í gær í Madrid (ekki slæmt það)

 

Ég og Kristín fengum vægt sjokk í dag þegar við fundum ekki bókunarnúmerið né staðfestingu á bókuninni á fluginu Madrid – London… Ég sá fram á að eyða jólunum á Spáni EIN! Frekar hefði ég synt til Íslands

 

Elska jólin en er ekki að átta mig á því að þau séu að koma!

 

Desember mun einkennast af fjöllustundum, Ómari Inga, jólum, pigerkvöldum, fótbolta, dobúldeitum (híhí) áfengi (sorry mamma) eða til að stytta þetta aðeins þá mun desember einkennast af GLEÐI!!

 

Mjög sundurslitin og skrítin færsla en vildi bara láta vita að ég er á lífiJ

 

Ást á ykkur 



Lítið og skrítiðÓsk Kristinsdóttir

Gengur voða illa að sofa á nóttunni, alltaf að hugsa um Ísland. Spenningurinn sem kemur vanalega daginn fyrir brottför er kominn 14 dögum of snemma hjá mér…

Hér er lífið eins og alltaf, miklar pælingar búnar að vera með jólagjafir en líklegt er að ég skelli mér til Madridar í vikunni og klári þann pakka!

Gaman af því að þegar ég er eitthvað óhress þá kíkji ég bara yfir msn-listann og sé að meiri hlutinn heitir xxxx læra! það gleður mig pínu!

 

Blákaldur sannleikurinn

 

Kem heim eftir 15 daga

Kem heim sami hvíti Íslendingurinn…

Kem heim sama Ósk ekki í formi, verð þó fljót að bæta það upp

Kem með of mikið af fötum heim

Kem til með að knúsa ykkur í drasl þegar ég hitti ykkur!

 

Annars vil ég óska mömmu innilega til hamingju með sína fyrstu málverkasýningu, það gekk líka svona rosa vel!!

Óska líka Öddu eða mömmu 2 eins og ég kallaði hana oft til hamingju með stórafmælið á föstudaginn!!


afsakið hléð eða afsakið hléið?Ósk Kristinsdóttir

Eintóm gleði búin að vera síðustu daga og tími fyrir blogg…

 

Mamma og pabbi fóru heim í gær eftir frábæra viku!! Það var rosa gott að fá þau og það var mikið stuð hjá okkur, forum til Madridar að versla, forum til Tolledo sem er mjög skemmtileg borg hérna rétt hjá, slöppuðum af, nutum þess að vera saman, spiluðum kínverskaJ, versluðum meira og borðuðum góðan mat!! Frábær vika í alla staði. Takk ma og pa;*

 

Hér á bæ er fædd gullfalleg prinsessa, ég er ekki alveg búin að ákveða hvort hún líkist Óla eða Kristínu og hún eiginlega ekki heldur því hún breytist svo ört. Vona að Kristinn Þór verði ekki orðinn fullorðinn þegar ég kem heim sem er bæðe vei eftir 25 daga…

 

Hlakka til að…

 

Knúsa Ómar Inga

Vera með bestu fjöllu í heimi

Leika við Kristinn Þór

Hitta og leika við piger og stelpurnar í boltanum

Fara í fótbolta….

Hitta vitleysingana Hödda og Beiti

Fá mér Devitos og Vellara

Fara í klippingu

Spila Fimbulfamb

Kela við Kötlu og borða ostapopp

Flytja í bílskúrinn

Verða kalt á rassinum

Keyra eðlilega (á eftir að vera skrautleg í umferðinni eftir að hafa keyrt hér)

 

Bestustu í Madrid

'

Í Tolledo

Tók svo fáar myndir á mína vél þannig ég set inn fleiri þegar ég kem heim

í dag...Ósk Kristinsdóttir


Í dag er laugardagur

Í dag fékk Kristinn Þór Hilmarsson nafnið sitt

Í dag á Helga Lóa afmæli, til hamingju með það!

Í dag eru 5 dagar í mömmu og pabba og 37 dagar í heimkomu

Í dag eru ?? margir dagar í að hér fæðist prinsessa

Í dag tók ég til í herberginu mínu

Í dag langar mér í nammi

Í dag fæ ég mér ekki nammi

 

 Í dag bloggaði ég

Adios amigos

Tek þennan þegar ég kem heimÓsk Kristinsdóttir

l_9cd0a16aae57254dda0bbb093c224f0e.gif

Hvernig helduru að það sé að drekka eldgos?Ósk Kristinsdóttir

Vil byrja á því að þakka guði fyrir að hafa skapað þann mann sem setur Næturvaktina inná youtube!!

 

Ertu ekki að fá það heima hjá þér, hvaða tegund af steik ertu eiginlega, þú ert með klofin góm, foreldrar þínir eru systkini er það ekki? þú ert allavegana ekki með kennitölu, hvar hefur þú verið smíða geimflaugar eiginlega, Illa vinstri grænn!!

Úff aðeins of fyndið….

 

Lífið er gott, farið að kólna hér á Spáni ekki Íslandkalt samt óska ég þess að það verði snjór í allan vetur heima á Íslandi svo ég geti farið nóg á bretti og búið til snjóhús kannski leyfir mamma mér að fá kerti í snjóhúsið! Við elskuðum snjóin þegar við vorum lítil!! þegar ég tala um við er ég að meina ég mitt fólk í minni götu;) Eitt snjóhús á dag kom skapinu í lag ásamt ófáum ferðum niður brekkuna góðu.

En já ég sagðist vona að það yrði snjór í allan vetur en fyrir þá sem ekki vita verð ég á Íslandi í allan vetur, og ég er að fíla það! Datt aldrei í hug að ég mundi sakna Íslands og ykkar svona mikið, aumingji já ég veit en ég ætla að sætta mig við það að vera Ósk aumingji, það hljómar ekkert svo illa!

 

Kem heim 17.des og ætlast til að haldið verður svaka heimkomupartý þegar ég kem heim enda búin að vera í burtu svoooo lengi;)

 

Styttist í mömmu og pabba (eigið að vera búin að ná því að þau eru best í heimi) aðeins 15 dagar…

 

Mont: Ég á fallegasta frænda í heimi sem fær bráðum nafn og bráðum (reyndar svolítið í það) fær hann að hitta uppáhalds frænku sína sem hann saknar mjög mikið (hann sagði pabba sínum það)

AFMÆLISBLOGGÓsk Kristinsdóttir

Heimsins besti pabbi á afmæli í dag en þar sem ég get ekki knúsað hann í klessu fær hann bara blogg í staðinn! Þið knúsið hann kannski bara fyrir mig… Annars mun hann fá stóran knús og kannski koss eftir 20 daga!!!

(á enga mynd af honum sem hann er ekki að dunda sér við eitthvað enda ekki þekktur fyrir að sitja kjurr;))

 

Til hamingju með daginn pabbi minn vonandi eigiði góðan dag á Fagra 100

Úffa púff…Ósk Kristinsdóttir

Tekið af síðunni 12. september

 

Heiður skrifar:

já ég gæti trúað því að þú kæmir heim mep svona 4 jólkjóla í viðbót...;)

en það er bara gaman


Þeir eru orðnir 3…(ef ekki fleiri:s) og ennþá 55 dagar eftir sem innihalda að öllum líkindum ferðir til Madridar!

 

Fer í spænskuskólann á morgun, “gaman” að segja frá því að hann er víst löngu byrjaður sá bara aldrei neitt um það, þannig á morgun verður tekinn heimski úllinn á þetta eins og svo oft áður á þessari dvöl minni hér! Verst að allir kínakallarnir og flekafólkið verður orðið betra en ég í spænsku!


Babyboy Hilmarsson á vikuafmæli í dag! Vona innilega að hann hafi átt góðan dag ásamt foreldrum sínum;)

 

Alltaf gaman að skoða myndir frá sumrinu þegar ég hef ekkert að gera! Mikið partýsumar sökum fótboltaleysis samt er Vala eiginlega alltaf með mér á myndum hmmm…. 

Þykir mjög vænt um commentin ykkar!!

 

ÁsT oG sAkN

Hér og þar aðallega þaaar...Ósk Kristinsdóttir

Sit hér inní stofu og horfi á Nýtt LífJ klassísk!!

Ég er búin að brosa allan hringinn þessa vikuna ég er svo glöð að eiga fallegasta frænda í heimi, get ekki beðið eftir að koma heim um jólin og knúsa hann og kyssa.

 

Fór í dag á markað sem er á hverjum laugardegi og er 20 skrefum frá húsinu, hafði aldrei farið þó svo að ég er búin að vita af honum frá því ég kom hingað, hann er helmingi stærri en ég bjóst við og nóg að dóti til að skoða! Ég keypti skartgripi og tösku einnig var mikið af fallegum skóm . Nú mun ég vera fastagestur á markaðinn

 

Búin að hneykslast mikið á þessu máli með kosninguna á besta leikmanninum, shit þetta mundi ALDREI gerast hjá körlunum, þetta er svo lélegt ég næ þessu ekki! Er þetta afbrýðissemi eða hvað er þetta? Leiðinlegt líka fyrir Hólmfríði að þurfa að taka við svona verðlaunum. Kvennmenn…

 

Vil óska nýjustu afmælisbörnunum Gunna, Palla, Elín Önnu, Evu Ósk og Rebekku til hamingju með afmælið

 

Hef því miður ekkert meira að segja vildi bara blogga eitthvað

Látið vita af komu ykkar inná síðuna:)

 

Hilmarsson fæddur!!!Ósk Kristinsdóttir


Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ósk Kristinsdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Aupair
  • Hjúskaparstaða: pikk föst

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...